Árni lærði matreiðslu á sínum tíma en það var eins með hana og margt annað að ekki leið á löngu þar til leiðin lét til sín segja. Og þá einkum leiði á því að vinna þegar allir aðrir voru í fríi. Út frá því tók Árni þá ákvörðun að segja skilið við matreiðsluna, amk á faglegu nótunum. Hann ákvað þó að halda við hana, en í þetta sinn sem hobby, dýrt hobbý skal ég gefa ykkur miðað við þann tíma, nám, fé og fyrirhöfn sem í hana höfðu farið. Ekki er þó öllu gleymt sem er grafið, og hefur Árni nú fundið eldmóðinn aftur og ætlar að taka til hendinni í eldhúsinu.